Dansfélagið Vefarinn

Nú vefum við mjúka, og dýrindis dúka

Nýtt ár

12. janúar 2012 kl. 13.25 · Óflokkað

Ágætu félagar. Takk fyrir síðast öllsömul, takk Maja og Gústi fyrir gott súkkulaði og meðí og takk fyrir kleinurnar Sissa og Jón á þrettándanum. Svo hittumst við í kvöld, Gunni var eitthvað að glugga í bækur í gærkvöld, veit svosem ekki hvort nokkuð kemur útúr því. Við allavegana munum dansa, syngja og hafa gaman eins og við erum vön. Mætum hress að vanda og byrjum þetta ágæta ár 2012.

Kveðja

Magga

Þrettándinn

6. janúar 2012 kl. 16.12 · Óflokkað

Ágætu félagar og aðrir sem vilja lesa þetta. Nokkrir félagar úr okkar hópi munu dansa og syngja við þrettándabrennu Þórs á Akureyri í kvöld 6.jan um kl. 19:00. Með ósk um gleðilegt ár og þökk fyrir liðnar stundir.

Kveðja

Magga og Gunni

Jól

25. desember 2011 kl. 23.24 · Óflokkað

Kæru félagar. Bestu óskir um góða jólahátíð (með miklu konfekti og öðru ljúfmeti) og frábært nýtt ár með þökk fyrir allar skemmtilegu stundirnar á þessu ári. Hlökkum til að halda áfram að dansa, syngja og hlæja með ykkur, við gerum örugglega eitthvað skemmtilegt á næsta ári ekki síður en undanfarið.

Vonum að allir hafi það sem allraallra best og allir geti notið lífsins þessa hátíðardaga

Kveðjur

Magga og Gunni

Aðventuferð út með firði

28. nóvember 2011 kl. 12.12 · Óflokkað

Jæja kæru félagar,  takk enn og aftur þið sem voruð með okkur í gær og takk Jón fyrir aksturinn. Það er alltaf jafn gaman að vera með ykkur, og við svo sannarlega vonum að áhorfendur hafi skemmt sér jafnvel og við. Ég reyndar veit að þetta framlag okkar veitir birtu í sál og sinni þessa aldraða fólks, svo marga kossa og mörg faðmlög fáum við. 

Mig langar að ítreka við ykkur að þið endilega komið sem allra flest næsta fimmtudag svona til að syngja með okkur jólalögin, því eftir þessa æfingu förum við í jólafrí. Nema við sem ætlum að dansa á Hlíð fáum ekki frí fyr en að því loknu.. 

 Knús og kossar til ykkar allra

Magga og Gunni 

Æfingar

24. nóvember 2011 kl. 17.05 · Óflokkað

Í kvöld er lokaæfing fyrir jólasýningar, 1.des verður síðasta æfing á þessu ári þá verður rennt yfir það sem á að sýna á Hlíð og svo bara leikum við okkur- endilega komið öll þá hvort sem þið ætlið að sýna á Hlíð eða ekki.

Hóhó

Magga og Gunni

Æfingabúðir

13. október 2011 kl. 13.36 · Óflokkað

Kæru félagar og aðrir sem lesa hér.

Við dansfélagar munum hittast í Stórutjarnaskóla annaðkvöld (14.okt.2011) og dansa-syngja og gera okkur glaða daga alla helgina. Endilega ef einhverjir eiga eftir að skrá sig að gera það í kvöld, það er ennþá pláss… Það verður örugglega gaman, Gunni er kominn með langan lista af dönsum og búinn að hressa uppá ýmis spor á stofugólfinu heima (mér skilst hann hafi verið með harðsperrur í gær)

Hlakka til að hitta ykkur

Kveðja  Magga :)

Ágætu félagar og velunnarar

22. september 2011 kl. 8.53 · Óflokkað

Þá er nýtt starfsár að hefjast hjá okkur í Vefaranum. Viljum við þakka öllum sem hafa stutt við bakið á okkur á liðnu starfsári og ekki síður þeim sem hafa horft á okkur dansa og gefið okkur gott klapp. Árið hefur verið viðburðaríkt-og bara æðislegt.  Þá viljum við bjóða nýja dansara velkomna. Í kvöld verður fyrsta almenna æfing vetrarins og hlökkum við mikið til að hitta ykkur öll. Æfingabúðirnar okkar verða helgina 14-16/10 og væntum við þess að við munum eiga góðar stundir þar.. Takk elskurnar fyrir skemmtilegt sumar. Höldum svo áfram á sömubraut- syngjum-dönsum-hlæjum.. Kveðja Magga og Gunni 

Skoða þetta

29. ágúst 2011 kl. 10.41 · Óflokkað

http://www.leifnorman.net/vefarinn-dance-group/

Kveðja Magga

N4

18. ágúst 2011 kl. 16.00 · Óflokkað

Ath. kl 18:15 ætlar N4 að sýna frá ferð okkar í Kanada…

Kveðja

Magga

Komin heim frá Kanada

5. ágúst 2011 kl. 23.21 · Óflokkað

Ágætu Vefarar og Vafrarar líka. Þið sem voruð í Kanadaferð, takk kærlega fyrir samveruna- þið sem voruð heima, hlakka til að sjá ykkur. Svo ég segi lítillega frá ferðinni okkar: Við dvöldum í Vinnipeg, nema eina nótt sem við gistum í Grand Forks í Norður Dakota. Við fórum til Grand Forks á föd 29.júl- seinlegt mjög að komast yfir landamærin, við sýndum í Mountain (litlu þorpi) á þeirra Íslendingadegi, mjög heitt en æðislega gaman, síðan var smá skoðunarferð - um kvöldið var svo samkoma og sýning. Við sýndum líka í Gimli á mád 1.ág tvisvar, og vorum í búningunum mestallan daginn- þarna var hitinn vel yfir 30 gr. Á mid 3.ág var skoðunarferð um Nýja Ísl. heimsóktum mann sem sker út fugla- þvílíkt flott- og sýndum svo um kvöldið. Að öðru leiti dóluðum við okkur í verslunum, á sundlaugarbakkanum og smá á barnum. Við fengum mjög góð viðbrögð og mikið hrós. Elsku þið öll takk takk takk fyrir að vera með okkur og fyrir að vera til. Svo höldum við áfram á sömu braut og verðum alltaf betri og betri í því sem við gerum.
Kveðja og stórt knús
Magga og Gunni